Matur & Mörk ehf. er í eigu Bjarna Rúnars Sigurðssonar og Jennýjar Gunnbjörnsdóttur og hefur Bjarni verið framkvæmdarstjóri frá stofnun.

Starfsmenn fyrirtækisins eru 12 – 17 í 12 stöðugildum. Flest er yfir sumartímann.

Fyrirtækið var stofnað í febrúar 1989 af þremur fjölskyldum sem keyptu fyrirtækin Mat sf. og samlokugerðina Mörk og sameinuðu í eitt fyrirtæki. Starfsemin var til húsa að Glerárgötu 26 fyrstu árin en í byrjun árs 1995 fluttist hún í Furuvelli 13. Í apríl 1999 var núverandi húsnæði, að Frostagötu 3c keypt og standsett með ýtrustu kröfur í matvælaiðnaði að leiðarljósi og fluttist starfsemin þangað í júní sama ár.

Framleiðsluvörur fyrirtækisins eru: Samlokur, langlokur, samlokuhyrnur, pastaréttir, pizzur, kjötbollur, fiskibollur, grillsósur, brauðsalöt og kartöflu- og hrásalat. Auk þess hóf fyrirtækið starfsemi Veisluþjónustu árið 1998 sem sérhæfir sig í smáréttum, smurbrauði og kaffiveislum.

Matur & Mörk er í samstarfi við Norðlenska um framleiðslu og dreifingu á sósum og salati undir vörumerki „Goða“.
Markaður fyrir framleiðsluvörur fyrirtækisins er stærstur á Akureyri en einnig eru vörur sendar til þéttbýlisstaða á norður- og austurlandi frá Hvammstanga austur til Eskifjarðar. Með því að Samkaup hóf verslunarrekstur á höfuðborgarsvæðinu sköpuðust tækifæri til að koma vörum fyrirtækisins á framfæri í Reykjavík og hófst sala þar í október 1999.

Framtíðarsýn stjórnanda fyrirtækisins er að sjá það dafna áfram sem hæfilega lítið matvælafyrirtæki sem framleiðir úrvals vöru og veitir góða þjónustu.